20 nóvember ađ koma og ég ţá ekki lengur ung...
Allavega ekki eins ung og ég var í gær...
Stelpan verður afmælisbarn eftir 50 mínútur... og ég var næstum því búin að gleyma því...
Stórfurðulegt og eiginlega hundleiðinlegt að vaxa upp úr spennunni sem því fylgir... Samt alltaf jafn mikið afmælis og jólabarn... en það er eitthvað að breytast !
Luv elskurnar
Sigga
Stelpan er á lífi
Finna brosið sitt, sjálfstraustið og læra að taka hrósi.
Hugsa hlýlega til náungans og passa upp á hvernig maður er í samskiptum við fólk. Maður kemst ekkert áfram með skeifu á andlitinu og pirring, fílu eða æsing.
Sigga litla ætlar að finna sjálfið sitt, er að fara til Þórunnar sálfræðings á þriðjudag og er bara mjög spennt fyrir því, ætla einnig að skella mér á Alanon fund um kvöldð með henni Önnu minni...
Brosiði, elskið ástvini ykkar, sýnið það í verki og ekki spara það að segja hversu vænt þér þykir um náungann! Lots of luv...
Sigga
P.s ætla að skella inn myndum af krökkunum mínum og af mér og vinum síðan um helgina :)

Máni minn :) þessi drengur á mína ást skilyrðislausa :)

Jenný mín , svo sæt og fín :) Love you

Berglind mín, Gerður, ég og einhver ónefnd...

Ég og Kjarri "bróðir" hehe :) Fínu vinirnir sem hafa ekki hist í heila öld held ég bara

Og að lokum stelpuróan sjálf...
Þetta var ágætis kvöld, hitti fá en góða vini...
Komst samt að því enn eiu sinni að ég er ekki að missa af neinu í miðbæ reykjavíkur, þetta bretist ekki neitt hehe :)
Og áttið ykkur á því að ég var bláedrú AND I LIKE´D IT
Sumt fólk.....
hæst í tómu bylur.
Oft er viss í sinni sök
sá er ekkert skilur.
Finnst þetta ósköp skemmtileg vísa...
Eigið góðan dag elskurnar!
Skríkjandi drćsa!
Foxý er farin til Svönu og Jónasar og lifir þar í vellystingum, sefur upp í , fær nóg af aukabitum, knúsi og kossum! Hvað gæti hundur óskað sér meira?
Annars verð ég að skammast mín aðeins, hef ekki farið á laugarvatn í eflaust meira en mánuð, hef voða lítið verið að hitta vinina og sinna þeim og ekki kíkt út á lífið í háa herrans tíð!
Hvað er eiginlega að valda þessu? Ég bara skil það ekki !
Núna er ég mjög gjarnan með heimaling hérna sem er ekki verra skal ég segja ykkur! Ég er bara nokkuð sátt með lífið og tilveruna, eins sátt og ég get verið miðað við aðstæður ;)
Sótti um nýja vinnu í gær, vegna persónulegra ástæðna ... Það er ekki vegna þess að mé rlíkar ekki smíðarnar, gæti alveg hugsað mér að læra þær! Það er ekki vegna mórals í vinnunni, ekki vegna strákanna minna í vinnunni heldur vegna þess að þetta yrði betra svona, svo að málin geti kannski þróast í rétta átt :) Þetta er alfarið mín ákvörðun og fæ ég vonandi svar með hina vinnunna á morgunn!
ég væri 5 mín að fara í vinnunna gangandi og er þetta eitthvað sem að ég hef mikinn áhuga á !
Ligg núna lasin heima, gjörsamlega að gefa upp öndina held ég ! Ég bað nú örra um að fara með mig í katthilt og láta bara lóga mér , en hann var ekki alveg til í það... spurði einning mömmu hans að því í gær og frú jónína hélt nú ekki, ég gæti komið mér þangað sjálf á mínum tveim jafnfljótu!
Sýkingarhætta sjáiði til!
Annars er ég búin að vera að velta fyrir mér hvar er fjölskyldan mín og vinir? Sama hvort það er á blogginu, símasamband eða í heimsókn þá bara sést þetta fólk varla!
Á ég að trúa því að laugarvatnsliðið komi aldrei í höfuðborgina, leirársveitar-fólkið já eða hreinlega þeor sem búa í reykjvík... Maður þarf nú eitthvað að endurskoða kynnin við þetta fólk ;)
Látið mig allavega sjá að þið séuð á lífi, þó ekki væri nema bara hér í smá commenti!
Núna ætla ég að henda mér aftur á koddann, búin að láta vita af mér í bili...
Smitkveðjur
Sigga
Ţrjóskan er ekki alltaf nóg!
Mér er mikið niður fyrir að þurfa að setja þetta hérna inn.
Fyrir ári síðan kom inn á heimilið mitt yndisleg tík sem gengdi nafninu Foxý. Hún var lítil og sköllótt og mér fannst hún bara fallegust, bræddi mitt litla hjarta alveg frá byrjun.
Foxý mín er rosalega mikill karakter. Tekur öllum vel, vill tala við alla og helst fara upp í "legið " á öllum sem koma í heimsókn, jafnt körlum sem konum. Ekki er til neitt sem heitir illska í henni þó hún geti nú alveg svarað fyrir sig þegar kemur að stórum hundum, enda alist upp með tveim slíkum frá því áður en hún varð eins árs. Hún er ekki hrædd við neitt, mikill könnuður um hluti, dýr og menn og er heimsins besti varðhundur, að hennar mati.
Hún er með viðkvæma húð og hefur alltaf verið. Þegar hún var ný komin á heimilið var hún nánast eitt blæðandi sár að sökum þurrks í húðinni. Í dag er hún mjúk og rosa fín lítil tík. Þessir hundar eru gjarnir á að fá fílapensla og stíflaða hárkirtla undir og á milli þófanna. Þegar ég hef orðið vör við það hef ég einfaldlega kreist það í burtu og látið svo eiga sig. Ég set ekki sótthreinsandi, ég notaði græðandi smyrsl þegar hún var yngri en nú í dag nota ég ekkert á hana.
Hef ég reynt að hafa það sem reglu að þvo augun hennar með soðnu vatni einu sinni á dag, eða eins oft og ég get. Mikið af stírum safnast í augun á henni og er ég mikið að hreinsa það, til þess að minnka það hef ég klippt hárin sem næst eru augunum niður þannig að þau séu ekki í þeim og ertandi þau upp.
Það skiptir ekki máli hvernig hún er, í mínum augum er hún alltaf fallegust.
Karma mín, Great Dane tíkin og Foxý eru mestu mátar og geta legið saman á gólfinu svo tímunum skiptir í bardaga, og þess á milli skríður litla dýrið mitt undir kviðin og nær sér í hita eða leggst ofan á Kerúb sinn. Hún hugsar vægast sagt vel um stóru systkyni sín, þrífur augun þeirra við hvert tækifæri og kyssir þau og knúsar eins og það sé hennar síðasta.
Foxý hefur aldrei þurft að vera ein. Hún hefur alltaf haft stóru hlunkana með sér til að passa þau, eða er með mér.
Og þegar ég lít til baka hefði ég ekki viljað hafa það neitt öðruvísi.
Hún er hraust, búin að fara í sprautur og skoðun eins og þau stóru og er heilbrigð að flestu leyti. Það eina sem háir henni er einskonar "bakflæði". Ef að hún borðar eða drekkur með miklum gassa-gangi þá koma hljóð sem að skelfa þá sem aldrei hafa heyrt það áður. Ég hélt að tíkin væri að drepast þegar ég heyrði það fyrst. En það er ósköp erfitt að lýsa því hér hvernig þau koma, en hún herpist öll saman. Mitt ráð er að taka hana í fangið og róa hana niður. Það hefur alltaf virkað. Þetta gerist líka stundum ef hún er mjög spennt, þegar koma gestir eða ef Karma og Kerúb gætu mögulega verið að stinga hana af í eltingarleik.
Hún Foxý mín hefur galla, stóran galla að mörgu leyti, en það er ekkert sem að ég gæti ekki tekið á mig að vissu leyti líka, en þó að hún hafi þennan galla og hafi stundum verið við það að gera mig gráhærða, svo hárlausa að þá er hún þó svo yndisleg að ég hef látið mig hafa það, og myndi sennilegast gera áfram ef aðstæður hefðu ekki breyst svo mikið.
Hún er kúkalabbi og pissudúkka inn í heimahúsum. Hún sækir í baðmottur eða ef það liggja t.d buxur á gólfinu, hún leitar að fleti til þess að gera þarfir sýnar á, og ef hún gerir það inni þá skammast hún sín alveg rosalega. Ég hef verið hörð við hana og sett hana hreinlega út og haft hana úti með hinum, þá pissar hún, en sjaldnast kemur kúkur, þó stundum. Ég er að vinna þannig vinnu að ég er farin klukkan 8:15 í vinnuna og er ekki að koma heim fyrr en á bilinu 17:00- 19:00. ég reyni að fara alltaf heim í hádeginu EF að hundarnir eru heima, og ef langir dagar eru þá koma þeir bara með mér annaðhvort að morgni eða í hádeginu og eru með mér. Ég vinn sem smiður og eru þau bara laus með mér , en auðvitað fer það eftir umhverfinu að hverju sinni. en þau eru aldrei ein heima þennan tíma í heild sinni. Ég er svo mikill kjúklingur að ég hef það ekki í mér að hafa litla dýrið eina í búri á meðan að ég er í vinnu, og það gefur auga leið að það bíður eftir mér pissupollur og kúkur þegar að ég kem heim. Ég veit að það er vel hægt að venja hana af þessu, og auðvitað óska ég þess að hún komist á heimili hjá einhverjum sem að er heimavinnandi, eða vinnur þannig að dýrið geti alltaf verið hjá þeim aðila.
Óskandi væri að það væri annar hundur á heimilinu því að hún þekkir ekki annað og er mikil félagsvera, bæði í menn og dýr.
Ástæða þess að ég verð að láta hana er sú að ég er fyrst og fremst að hugsa um hennar hag. Ég er að vinna mikið, er að vinna vinnu þar sem að hún getur ekki verið ein allan daginn, né verið úti allan dagin eins og þau stóru. Athyglin ósjálfrátt skerðist sem ætti að vera að beinast að henni og hún á ekki skilið annað en að fá alla heimsins athygli frá eiganda sýnum. Á meðan að hin geta komið með mér í hesthúsið, hlaupið með ef ég fer á vélsleða og verið úti í hvernig veðri sem er , þá er það ekki leggjandi á hana.
Ég er bara að vera raunsæ um hennar hag og ekkert annað.
Ég er ekki að óska eftir einhverjum sleggjudómum fyrir að taka hana að mér í flýti eða gera mér ekki grein fyrir hlutunum, stundum bara æxlast hlutirnir á þennan hátt og verður það þá bara að vera svo.
Ég er búin að fá margar fyrirspurnir um hana síðan að ég fékk hana og alltaf neitað.
Ég ætlaði mér að láta þetta ganga, ætlaði mér að eiga hana og elska hana ein en það gekk ekki.
En ég er mjög skeptísk á það hvert hún fer, til hvernig fjölskyldu og mun vera mjög frek á að vita um fjölskyldu hagi og háttarlag.
Ég vil að hún verði geld. Ég væri búin að því sjálf ef að ég hefði ekki verið með þessi tvö stóru í miklum aðgerðum og búin að punga nokkrum hundrað köllum út fyrir því, maður getur ekki gert allt í einu.
En þessi tík hefur ekkert með það að gera að vera ógeld.
Ég vil fá að fylgjast með henni og fá að hitta hana.
Ég vil , ef þetta heimili bregst, fá hana strax aftur til mín, ekki á eitthvað flakk af mér óvitandi.
Ég mun nýta mér neitunnarvaldið alveg hiklaust. Og bið ég fólk aðeins að hafa samband ef það hefur virkilegan áhuga og ef það telur sig geta veitt henni það sem að
ég fer fram á.
Það er hægt að hafa samband við mig á [color=red]sigridurj@gmail.com [/color]
eða hérna.
Með henni fylgja theo-kuldagalli, íþróttagalli sem er góður yfir sumarið, ullarvesti, matarskálar og annað slíkt, sem og heilbrigðisvottorð.
Ég vona að nýjir eigendur vilji vera í sambandi við eigendur systkyna hennar enda frábært fólk og gaman að fylgjast með þessum elskum.
Ég læt þetta gott heita í bili, þarf að þerra lyklaborðið og knúsa dýrin mín. Eins og ég sagði ofar þá er þetta eitthvað sem að ég er búin að fresta eins og ég mögulega get en það er henni fyrir bestu að fá nýtt
heimili.
Kær kveðja Sigga
Kettiđ er týnt!!!
Ef þú hefur einhverjar upplýsingar um ferðir Haralds ertu vinsamlegast beðin um að hafa samband við Svein Hauk Herbertsson í síma 6997898.
Nota átti hann í inniskó, það er nefnilega búið að spá köldu sumri.
Kveðja ... ekki eigandinn af kettinu, aðeins auglýsandi.
Ást er einhver helvítis vitleysa!
vinur minn sagði ást í poka sem má ekki loka..
vinur minn sagði ást í krukku gefur ekkert nema lukku
vinur minn sagði ást í kassa þarf að passa
vinur minn sagði ást er best þegar hún mætir rest
vinur minn sagði ást í hjarta er í gott að sparka
vinur minn sagði ást er vond
vinur minn sagði ást sökkar
fukk ást.. fukk rósirnar..
fukkit all..
Enda gæti þetta ekki verið meiri helvítis vitleysa en það er nú þegar.... !
Já ég er bitur... já ég er reið ... og nei þið viljið ekki mæta mér í dimmu húsasundi akkurat núna... þó það væri ekki nema í árbæjarlaug eða kringlunni ![]()
Blautir draumar í vinnunni... Er ţađ tilfelliđ hjá kvenţjóđinni?
Samkvæmt könnuninni eru það fyrst og fremst núverandi makar eða stjörnur sem konurnar hugsa um þegar ímyndunaraflið fer á fullt.
Á venjulegum átta tíma vinnudegi hugsa konur 34 sinnum um kynlíf samkvæmt nýrri könnun, eða einu sinni á 14 mínútna fresti. Þetta kemur kannski ekki á óvart þar sem ein af hverjum þremur konum kvartar undan kynlífssvelti.
Djöfull skil ég þær vel... Talandi um kynlífssvelti!
Rúmlega 1.000 konur tóku þátt í könnuninni, sem var gerð fyrir stefnumótasíðuna Dating Direct.
Fram kemur að tæpur helmingur kvennanna eru óánægðar með kynlífið, sem leiði til kynlífsóra yfir daginn.
Þá segja sjö af hverjum 10 konum verja um klukkustund á dag í að hugsa um kynlíf.
BARA klukkutíma???
Samkvæmt könnuninni eru það fyrst og fremst makar þeirra eða stjörnur sem konurnar ímynda sér njóta ásta með.
Erum við að tala um þetta týpíska Brad Pitt dæmi...? Vonandi eru þær jafn gáfulegar og ég og hafa Bubba í þessum dagdraumum ;)
Næst koma ókunnugir menn, sem konurnar hafa tekið eftir, og fyrrverandi elskhugar.
Fimmtíu og þrjú prósent kvenna viðurkenna að þær séu skotnar í einhverjum í vinnunni.
Ég er sérstaklega skotin í Bigga þegar að hann fer með fölsku tennurnar á fullt ![]()
Þá kemur fram í rannsókninni að um 40% kvenna ímyndi sér að þær séu að njóta ásta með öðrum manni á meðan þær eru að stunda kynlíf með sínum maka.
Sjö prósent þeirra hafa hrópað nafn annars manns á meðan ástaratlotunum stóð.
Nei ég sprakk úr hlátri við lestur á þessu sem ég gerði rauðlitað í textanum að ofan.... Vandræðalegt ![]()
Bjartsýni/svartsýni og sjálfsagđir hlutir.
Við eigum ekki að geta leyft sjálfum okkur að taka neinu sem sjálfsögðum hlut, við eigum ekki að hugsa að ég geti gert á morgunn það sem að þú getur gert í dag, því að þú veist aldrei hvort manneskjan sem að þú ætlaðir að heimsækja, eða fólkið sem þú vildir heyra í verði hér á morgunn.
það eru nokkrir hlutir sem að mér er hugsað til þegar ég pæli í þessu .....
- Hafa aðgang að hreinu og tæru lofti er eitthvað sem ég tek sem sjálfsögðum hlut en er það svo sannarlega ekki!
- Vatn! Drykkjarhæft vatn úr krananum! Ómetanlegt!!!
- Frelsi til að komast ferða minna, óáreitt
- Geta tjáð mig og vera sama þótt ekki séu allir sammála mér
- Geta elskað án þess að vænta einhvers á móti
ég get talið áfram... - Að vera frísk
- Eigja góða fjölskyldu
- .Að vera jákvæð
- Góða náttúran okkar
- þykja væntum fólk og dýr
- Allir eiga fyrir mat og á sig
- þykja vænt um sig

að foreldrar mínir eru bæði á lífi
geta farið út svo snemma á morgnana að fuglarnir eru enn sofandi og hlustað á kyrrðina
Að geta andað hjálparlaust. - Að vera með bílpróf og eiga jeppa.
- Að vera ekki dópisti eða alki.
- Að fá að eldast án þess að aðrir séu á móti því.
- Að hafa elskað og AÐ elska.
- Í 22 ár hefur alltaf komið nýr dagur.
Það hefur marg sannað sig að bjartsýni kemur manni vel að lokum. Það er eitthvað annað en svartsýni!
Svartsýni hefur háa fylgni við
- þunglyndi
- veikindi
- lélegan árangur í námi, íþróttum og vinnu
Bjartsýni hefur háa fylgni við
- hamingju og lífsánægju
- góða heilsu
- góðan árangur í námi, starfi og íþróttum

Með þessu ætla ég að kveðja í dag...
ásamt orðum Sigmund Freud: Án ástar, ekkert líf - án átaka, enginn þroski
Misrétti alltaf hreint!
Stjörnuspá
Sporðdreki: Þú ert í aðstöðu til að dæma, en ekki gera það! Hlustaðu á fólk með opnum huga. Pældu í hvert þitt eigið framlag er. Einhver verður skotinn í þér í kvöld.
Já í kvöld gerist það! Díses gat það ekki verið um hádegisbilið,
Já í kringum alla sveittu vinnukallana? Sérstaklega vörubílstjórana....
Djöfulsins misrétti múhahaha

Já í kvöld gerist það! Díses gat það ekki verið um hádegisbilið,
Já í kringum alla sveittu vinnukallana? Sérstaklega vörubílstjórana....
Djöfulsins misrétti múhahaha

